ÍR 5.fl.stelpur

Velkominn á síðu 5.fl.kvk ÍR

04.03.2011 10:25:03 / ÍR5.fl.kvk

Fjáröflun !!

Hæ hæ :)

Nú er fyrsta fjáröflunin fyrir mót sumarsinskomin í gang. Í boði eru wc-pappír, eldhúsrúllur, hrísgrjón og lakkrís. Ekkiverður hægt að skila vörunum og greiða verður fyrir afhendingu með því að millifæra á reikning stúlknanna ( sem kemur hér inn fljótlega ). Öllum stúlkunum erheimilt að selja varninginn - þó þær fari ekki með í ferðirnar. Allar stelpurnar ættu að hafa fengið með sér blað heim þar sem taldar eru upp vörur og verð endilega látið vita ef ykkur vantar blaðið og ég þá sendi ykkur það í tölvupósti. 

ATH : Skila verður inn pöntun fyrir kl 18.00 fimmtudaginn 10 mars !

Best er að senda pöntunarseðilinn í tölvupósti á irstelpur5@live.com eða skila honum á æfingu fram að 10 mars nk.
Vörurnar verða afhentar í ÍR heimilinu miðvikudaginn 16. mars kl 17.30, athugið að sýna þarf kvittun við afhendingu. Ef eitthvað er óljóst þá vinsamlega hafið samband við foreldraráð eða Kristrúnu í síma 864-9999

Verið er aðstofna reikning fyrir flokkinn og verður bankanúmer og kennitala sett inn áheimasíðu flokksins í næstu viku. Vinsamlegast skráið nafn stúlku í skýringuvið greiðslu og sendið tilkynningu á netfangið irstelpur5@live.com />


kv Foreldraráð 


» 20 hafa sagt sína skoðun

15.10.2010 18:01:52 / ÍR5.fl.kvk

Ný bloggsíða

Hæ stelpur

Við erum komin með nýja bloggsíður hún er irstelpur5.blogcentral.is. eftir mótið munum við bara nota hana.

Leikirnir er svona á mótinu 

1999 árgangur

13:30 ÍR - KR
14:00 Leiknir R. - ÍR
14:30 ÍR - Fram

2000 árgangur

13:45 ÍR - KR
14:15 Leiknir R. - ÍR
14:45 ÍR - Víkingur R.

Það er mæting hjá öllum kl 13:00

Sjáumst hressar

kv Biddý


» 17 hafa sagt sína skoðun

11.10.2010 11:49:52 / ÍR5.fl.kvk

Tvö atriði á dagskrá á næstunni

Hæ stelpur og foreldrar.
Það eru tvö atriði næst á dagskrá hjá okkur

NR 1
Á fimmtudaginn 14. október er foreldrafundur upp í ÍR-heimili kl 18:30. Þar fáum við að sjá hvort annað og kynnast og svo verður farið yfir mótin á tímabilinu. Einnig þarf að raða í foreldraráð sem ég veit að þið eruð alveg æst í að komast í :)

NR 2
Haustmótið er núna á laugardaginn 16. október og á þessu móti er skipt í yngra og eldra ár. Það er frá kl ca 13:00-15:00

Það er svo æfing í dag. Þessi æfing er bara sérstök á mánudegi þar sem það var ekki æfing á laugardaginn. Æfingin byrjar kl 17:30 og er til 18:30.

Hlakka til að sjá allr

Kv Biddý

» 28 hafa sagt sína skoðun

05.10.2010 23:12:23 / ÍR5.fl.kvk

Fyrsta Æfingin :) :) :)

Jæja stelpur

Þá er komið að því..... fyrsta æfingin okkar sem nýr 5. flokkur er á morgun miðvikudag kl 17:30 á ÍR-velli.

Ég er ótrúlega spennt að sjá ykkur allar.

Látið vinkonurnar vita þannig að allar viti að það sé æfing og um að gera að reyna að fá nýjar stelpur á æfingu.

Sjáumst hressar og kátar

Kv Biddý

» 19 hafa sagt sína skoðun

01.10.2010 15:39:33 / ÍR5.fl.kvk

Æfingar að byrja og skilaboð til foreldra

Sælir kæru foreldrar  og stúlkna í 5. Flokki kvenna og stelpur sjálfar :)

Nú ferð að líða að því að æfingar byrji hjá nýjum 5. Flokki.

Fyrsta æfingin er á miðvikudeginum 6. Október en æfingarnar verða svona:

Miðvikudagar 17:30-18:30 á ÍR-velli

Fimmtudagar 17:15-18:15 á ÍR-velli

Laugardagar 11:30-12:30 á ÍR-velli

Þetta má einnig finna á heimasíðun ÍR sem er www.irsida.is

Þið ykkar sem eigið stelpur sem eru að koma upp í 5. Flokk,  meigið búast við áheyslubreytingum þar sem verður meiri áheyrsla lögð á þolþjálfun og styrkingu í undibúningtímabili og svo leikfræði og tækni þegar tekur að vora.

Þið ykkar sem eigið stelpur sem eru núna að fara á eldra ár í flokknum, ættuð að kannast við hvernig þetta gegnur fyrir sig og því gott að undribúa stelpurnar undir veturinn.

Það mun svo verða foreldrafundur fljótlega í október þar sem ég fæ að sjá ykkur sem eruð ný og líka þau sem hafa verið. Við þurfum að hlúa vel að stelpunum okkar og hjálpast að við að gera þetta skemmtilegt innan vallar sem utan.

 

Hlakka til að starfa með öllum

Kv Biddý þálfari 5. Flokks kvenna ÍR


» 19 hafa sagt sína skoðun

27.09.2010 13:02:14 / ÍR5.fl.kvk

Hittingur heima hjá Anítu Birnu

Hæ stelpur

Foreldrar Anítu Birnu ætla að vera svo góðir að bjóða okkur heim til sín miðvikudaginn 29. september kl 18:00-21:00

Allar að koma og höfum smá gaman í síðasta sinn sem þessi 5. flokkur sem stóð sig rosalega vel.

Mig langar að segja ykkur hvað ég er ótrúlega stolt af ykkur í sumar. Þið stóðuð ykkur eins og hetjur og það voru rosalega miklar framfarir sem ég sá á ykkur frá hausti og fram á sumar. Þið voruð farnar að spila saman sem lið og allar að leggja sig fram.

Mér finnst alltaf jafn erfitt að kveðja hlut af hópnum en þið sem eruð að fara upp í 4. flokk, ég mun fylgjast með  ykkur á næsta ári :)

Ég hlakka til að hitta allar.

Allar að koma

Endilega staðfestið hvort þið komist eða ekki svo að Hendrik og Bára (foreldrar Anítu Birnu) geti séð hvað þetta eru margar stelpur. Og endilega ef þið þekki stelpurnar sem voru nýbyrjaðar að æfa segið þeim að koma líka.

Kv Biddý

» 26 hafa sagt sína skoðun

22.09.2010 11:03:53 / ÍR5.fl.kvk

Hittingur

Jæja kæru foreldrar og stelpur

Er engin sem getur boðið stelpunum heim í pulsur og mynd ?

Það er soldið leiðinlegt að við höldum ekkert svona kveðjupartý þar sem margar eru að fara að ganga upp í 4. flokk.

Endilega spáið í þessu

Kv Biddý

» 21 hafa sagt sína skoðun

15.09.2010 09:36:55 / ÍR5.fl.kvk

Uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar ÍR

Hin árlega uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Íþróttafélags Reykjavíkur verður haldin laugardaginn 18. september n.k. í ÍR-heimilinu. Hátíðin hefst kl 11:30 og þangað eru iðkendur, foreldrar/forráðamenn og aðrir fjölskyldumeðlimir velkomnir. Þar verða veittar viðurkenningar fyrir ástundun í yngstu flokkunum, auk þess sem leikmenn ársins og þeir sem hafa tekið mestum framförum eru verðlaunaðir í eldri flokkunum þ.e. 3. 4. og 5. flokki karla og kvenna. Nýir þjálfarar verða kynntir sem og þeir þjálfarar kvaddir sem láta af störfum.

Barna og unglingaráð mun sjá um grill og annað í lok hátíðar og á meðan er öllum velkomið að leika sér í knattþrautum á gervigrasinu líkt og síðustu ár. Kl 14:00 mun meistaraflokkur ÍR spila sinn síðasta leik í sumar á móti Þrótti Reykjavík á Valbjarnarvellinum í Laugardal. Þangað viljum við hvetja alla ÍR-inga til að fara og styðja við bakið á strákunum.

Svo um kvöldið verður uppskera hjá eldri iðkendum ÍR þ.e. m.fl. og 2.fl. karla og kvenna. Húsið opnar kl. 19:00 en borðhald hefst kl. 20:00. Halldór Þ Halldórsson mun sjá um matinn en eins og undanfarin ár mun engin verða svikin af steikum hans. Miðaverði er stillt í hóf eins og áður eða 2500 kr. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu ÍR eða í síma 587-7080. Einnig verður hægt að kaupa miða hjá Braga í Leiksport. 

Við hvetjum ykkur ÍR-ingar til að fjölmenna og gleðjast með okkar fólki.

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

20.08.2010 14:42:49 / ÍR5.fl.kvk

HK mótið

Hæ stelpur

Nú er það síðasta mótið hjá þessum 5. flokki
Það hefst á laugardag og er frá 09:00-14:00

Liðin raðast svona
A-lið     
María     
Rebekka       
Eva Rut   
Aníta Birna 
Anna Dóra 
Hildur
Marta
Sússa
B-lið   
Stefanía
Sóley
Helena
Jenný
Helen
Agnes
Hera

                  

Leikirnir hjá liðunum eru svona
A-Lið
09:00 1 HK ÍR

10:00 1 ÍR Ægir

11:00 2 ÍR KR

12:00 1 ÍR Víkingur

12:30 2 ÍR Keflavík

B-lið
09:00 3 HK ÍR

10:30 3 ÍR Víkingur

12:00 3 KR ÍR

13:30 3 ÍR Keflavík


Það þarf að mæta hálftíma fyrir fyrsta leik eða kl 08:30 allar.

Sjáumst í Fagralundi

Kv Biddý

» 23 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 23:57:02 / ÍR5.fl.kvk

Leikur við Víði í Garðinum

Hæ stelpur....

Þá er komið að síðasta leiknum okkar í Íslandsmótinu þetta sumar. Það er leikur við Víði Garði og hann er í Garðinum.

Það eru sömu lið og voru síðast á móti Víking.

A-lið á að mæta í seinasta lagi kl 16:30 leikur hefst kl 17:00
B-lið á að mæta kl 17:15. leikur hefst kl 17:50

Ég verð sjálf sein því að ég er að vinna og næ ekki að hætta fyrr. En ég verð samt komin áður en leikurinn byrjar.

Ef það eru einhverjar sem eru með laus sæti hjá sér þá veit ég að Mörtu og Sússu og Helen vantar far.

Allar að kvitta hverjar komast og hverjar ekki. Og endilega setið líka hér á bloggið ef það er einhver sem er með laust sæti og gæti tekið stelpur sem vantar far.

Sjáumst á morgun

Kv Biddý

» 23 hafa sagt sína skoðun

16.08.2010 14:25:20 / ÍR5.fl.kvk

Leikur á morgn við Víking á ÍR-velli

Það er leikur á morgun hjá A og B liði við Víking Reykjavík á ÍR-velli. Báðir leikirnir hefjast kl 16:00 og þá er mæting kl 15:15. Það er möguleiki að ég verði aðeins of sein en þið bara klæðið ykkur í búninga og bíðið eftir mér ef ég er of sein. Ég reyni að vera það ekki en ég er í vinnu.

Það er mikilvægt að allar komi á æfingu í dag kl 16:15  því að þetta er síðasta æfingin fyrir leik.

Ástæðan fyrir því að æfingin er færð er sú að það er leikur á ÍR-velli kl 17:00 og það má ekki vera æfing á meðan á honum stendur. Og það er ekki hægt að sleppa æfingu í dag útaf því að það er leikur á morgun.

Allar að kvitta hverjar komast og hverjar ekki.

Kv Biddý

» 26 hafa sagt sína skoðun

11.08.2010 15:47:07 / ÍR5.fl.kvk

HK mót

Hæ stelpur

Við ætlum að reyna að fara á HK mót sem verður laugardaginn 21. ágúst. Mótið er frá 09:00-14:00 og kostar 1.500 kr. Það þarf ekki að borga neitt staðfestingargjald.

Endilega talið við foreldra ykkar og setjið hér í comment hvort að þið komist á þetta mót eða ekki. Við höfum farið á þetta mót áður og það er mjög skemmtilegt

Sjáumst í dag á ÍR-velli kl 16:15.

Kv Biddý

» 26 hafa sagt sína skoðun

10.08.2010 09:01:21 / ÍR5.fl.kvk

Leikur á morgun við Fram

Jæja stelpur.

Það er leikur á morgun við Fram á ÍR-velli.

Það er mæting hjá báðum liðum kl 16:15 og báðir leikir hefjast á sama tíma kl 17:00

Staðfesta sem fyrst eða boða afföll.

Allar að byrja svo að hugsa um leikinn og undirbúa sig.

Sjáumst á æfingu í dag kl 16:30.

Kv Biddý

» 28 hafa sagt sína skoðun

04.08.2010 19:16:50 / ÍR5.fl.kvk

Æfing á morgun

Hæ stelpur....

Þá er komið að því að setja allt í fullan gang aftur. Það er æfing á morgun kl 16:30 á ÍR-velli.

Það eru nokkrir foreldrar búnir að spyrja mig af hverju það var ekki æfing í dag miðvikudag. Ég ætla bara að útskýra það hér þannig að þið stelpur og foreldrar vitið það.
Ég þurfti að fara í kistulagningu í dag og hélt að ég hefði verið búin að biðja Töru um að taka æfinguna í dag en svo þegar ég hringdi í hana til þetta að athuga hvort að hún ætlaði ekki að þjálfa þá vissi hún ekki að hún ætti að þjálfa. Þannig að annað hvort hef ég gleymt að hringja eða hún gleymt því að ég var búin að biðja hana. Ég komst svo ekki á netið til þess að útskýra því að athöfnin var að byrja. En þetta kemur ekki fyrir aftur og ég bið ykkur um að afsaka þetta.

Núna er bara að setja allt í gang. Næsti leikur er á miðvikudaginn eftir viku við Fram.

Við sjáumst á morgun kl 16:30 á ÍR velli

Kv Biddý

» 18 hafa sagt sína skoðun

18.07.2010 16:12:38 / ÍR5.fl.kvk

Símamóti lokið :)

Takk fyrir frábæra helgi stelpur þið voruð alveg hreint frábærar ! Ég er búin að búa til albúm sem heitir Símamót 2010 þar sem ég skellti inn öllum myndum sem ég tók. Ef þið viljið fá einhverjar myndir sendar í betri stærð látið mig bara vita og ég get sent á mömmu ykkar eða pabba í email.
Samkvæmt Biddý er engin æfing á morgun og þriðjudag og svo æfingar með Töru að ég tel á miðvikudag og fimmtudag.

kv Solla mamma Sóley Birtu


» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 70498
Klukkan
Könnun
Hverjir verða heimsmeistarar í fótbolta






UPPLÝSINGAR UM PÆJUMÓT